Æfing dagsins: Snörun með handlóði

Æfing dagsins er Snörun með handlóði (dumbbell snatch). Þetta er æfing sem krefst þess að við notum allan líkamann (full body exercise) og eykur hún kraft og hraða. Markmiðið er að hreyfa lóðið frá gólfi og upp fyrir ofan höfuð í einni kraftmikilli hreyfingu og er nauðsynlegt að hafa sterka fætur, mjaðmir, axlir og core svo eitthvað sé nefnt. Einnig er verið að  vinna með jafnvægi, þar sem önnur höndin notast við lóð, á meðan hin er frjáls og sér um að stilla líkamann af.

Þessi æfing er styrktaræfing þannig ég mæli ekki með því að hafa létt lóð og gera margar endurtekningar, heldur hafa góða þyngd þar sem markmiðið er 3-5 endurtekningar á hvora hönd og einnig er nauðsynlegt að gefa allt í settið þar sem þetta er sprengikraftsæfing!! ÞETTA Á EKKI AÐ VERA AUÐVELT :)

Punktar:

  1. Þegar gripið er um handlóðið er mikilvægt að hafa bakið beint og fætur eiga að vera bognir og rassinn nálægt hælunum.
  2. Þegar lyftan er framkvæmd skulu mjaðmir, axlir og handlóðið færast upp á við á sama hraða.
  3. Krafturinn byrjar frá tánum og færa skal þyngina á mið-fótinn.
  4. Lóðið á að vera nálægt fótleggjunum þegar lyftan er framkvæmd. Ástæðan er að lína líkamans á að haldast stöðug
  5. Þegar þyngdin er á miðju læri á að auka hraðann á lóðinu á leiðinni upp með miklum krafti og rétta skal úr hnjám og mjöðmum þangað til að líkaminn er alveg beinn. Á sama tíma skal yppta öxlum og er þessi partur af lyftunni oft kallaður “önnur lyftan”
  6. Þegar lóðið hefur náð hámarks hæð skal þyngdarpunki líkamans komið undir lóðið á sama tíma og lóðið gripið með beinar hendur, olnbogaliðir læstir og hné bogin. Þessi hluti lyftunnar krefst góðrar samhæfingar og tímasetningar.
  7. Síðasti hluti lyftunnar er að rétta úr fótum með hendur læstar.

Ummæli eru ekki leyfð.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.