TRX Supension Trainer

Eins og ég skrifaði um hér að neðan er „core“ þjálfun mjög mikilvæg fyrir íþróttamenn. Allir þeir sem hafa æft og verið í þjálfun hjá mér, vita að ég legg rosalega mikla áherslu á að innri kvið- og bakvöðvar séu í lagi. Öll Functional hreyfing og æfingar byggja á því að miðjan sé í lagi og þess vegna er nauðsynlegt að styrkja sig á þessu svæði áður en farið er út í djúpu laugina, æfingalega séð. Ef skortur er á þróun styrks á þessum vöðvum, þá eru mun meiri líkur á meiðslum í kjölfar æfinga.

Undanfarna mánuði hefur æfingatæki  sem heitir TRX suspension trainer, tröllriðið líkamsræktargeiranum. Þetta tæki er mjög einfalt en það VIRKAR. Ég hef verið að lesa mig til um þetta tæki og æfa mig í því sjálfur og fundið margar frábærar æfingar. Flestir sem hafa farið inná líkamsræktarstöðvar undanfarið hafa séð þetta „band“.

Þetta tæki er frábært fyrir alla hreyfiþjálfun (functional) og hentar því íþróttamönnum rosalega vel. Engin lóð eru notuð, heldur aðeins eigin líkamsþyngd. Ávinningurinn að gera fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar er: jafnvægi, liðleiki, stöðugleiki liðamóta, hreyfanleiki og core styrkur.

Margir af fremstu íþróttamönnum heims hafa verið að fikta við þetta tæki og nægir hér að nefna Carmelo Anthony leikmann Denver Nuggets í NBA og Drew Brees sem var á sunnudaginn kosinn maður Superbowl leiksins í NFL.

Steve Hess, aðalstyrktarþjálfari hjá Denver Nuggets og einn sá færasti að mínu mati, hefur verið að nota TRX á lið sitt með mjög góðum árangri.

Hér er Carmelo Anthony með Steve Hess

Svo ég haldi mér nú við efnið, þá ætla ég að setja inn æfingu dagsins. Drew Brees leikstjórnandi Saints í NFL sýnir okkur hvernig nota má TRX í fjölbreyttar, mjög skemmtilegar og erfiðar æfingar.

Ein ummæli to “TRX Supension Trainer”

  1. TRX virkar búja!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.