The Core

Þar sem ég hef farið út í sprengikraft í síðustu tveimur færslum, þá ætla ég að fara aðeins í það sem mér þykir einn mikilvægasti þáttur fyrir íþróttamenn að byggja upp. Þessi þáttur á það oft til að vera útúndan og getur þar að leiðandi leitt til meiðsla. Miðhlutinn er svokallaður „foundation of strength“. Áður en hafist er handa er að mínu mati mjög mikilvægt að hafa góðan „core“ styrk.

Miðhluti (core) líkamans samanstendur af vöðvum á búknum og vöðvar á útlimum eru ekki taldir með. Mikilvægustu vöðvarnir eru djúpir kviðvöðvar og vöðvar í mjóbaki. Þessir vöðvar eru oft kallaðir stöðugleika vöðvar. Þessi vöðvahópur gefur körfuknattleiksmanni vöðvaþol til þess að halda ákveðinni stöðu í ákveðinn tíma. Það gæti t.d. verið varnarstaða, þar sem hann þarf að vera með bogin hné og hreyfa sig til hliðanna, til þess að komast fyrir sóknarmanninn. Margar æfingaráætlanir fyrir körfuknattleiksmenn sleppa þessari svokölluðu jafnvægisþjálfun og fara þess í stað beint í styrktarþjálfun. Við það eykst meiðslatíðni vegna þess að liðamótin og stöðugleika vöðvarnir hafa ekki fengið nægilega þjálfun til þess að takast á við styrktaræfingar og miklar þyngdir.

Allar hreyfingar líkamans fara í gegnum búkinn og er hann annaðhvort ábyrgur fyrir upphafi hreyfingar eða jafnvægis hlekkur, þar sem allar hreyfingar fara í gegn. Vöðvarnir sjá líkamanum fyrir jafnvægi, snerpu og samhæfingu þegar verið er að framkvæma hreyfingar. Helmingur vöðvamassa líkamans er á þessu miðsvæði. Hægt er að framkvæma margar æfingar til þess að auka færni og styrk þessara vöðva. Í dag er mjög algengt að notuð séu alls konar tæki og tól til þess að virkja þessa jafnvægis vöðva. Sem dæmi má nefna stóra kraftbolta, sem hægt er að gera fjöldann allan af æfingum á.

Nýjasta uppáhalds tækið mitt er TRX suspension en í öllum æfingum sem gerðar eru í því tæki, þarf að passa upp á líkamsstöðuna og með því styrkjum við miðhlutann. Steve Hess er aðal styrktarþjálfari hjá Denver Nuggets í NBA deildinni. Hann lætur sína leikmenn fara í gegnum hrikalegar æfingar með TRX. Gott fólk þetta virðist ekki vera neitt rosalega erfitt en þetta er helmingi erfiðara en það lítur út fyrir að vera :)   Á linknum hér fyrir neðan er hægt að sjá smá grein og video frá Steve Hess og Dahntay Jones fyrrum leikmanni Nuggest og núverandi leikmanni Indiana Pacers. Enjoy

http://workoutanywhere.wordpress.com/2009/02/24/dahntay-jones-trx-training-stack-tv/

bestu kveðjur, Villi

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.