Hvað er sprengikraftur?
Sprengikraftur er sá eiginleiki að hreyfa limi eða aðra hluta líkamans á sem mestum hraða. Dæmi um íþróttagreinar þar sem sprengikraftur og hraði þurfa að vera ríkjandi eru spretthlaup, körfubolti, fimleikar, fótbolti og kúluvarp svo einhverjar greinar séu nefndar. Hoppþjálfun (plyometrics) varð vinsæl seint á áttunda áratugnum og í byrjun níunda áratugar síðustu aldar. Það sem fólst í þessari þjálfun var að auka stökkkraft og snerpu til muna og einkenndust þessar æfingar af miklum endurtekningum og hoppum upp á kassa t.d. Þetta er dæmi um góða þjálfunaraðferð til þess að auka stökkkraft og sprengikraft

Það er smá sprengikraftur í þessum

Körfubolti er íþrótt sem byggð er á hreyfingu alls líkamans. Leikmenn nota nánast aldrei einn vöðvahóp í sínum hreyfingum. Það að hoppa í frákast, hreyfa sig með bogin hné í vörninni, stökkva upp í skot eða hreyfa sig án bolta eru allt hreyfingar sem krefjast snerpu og sprengikrafts. Til þessa að bæta sig í íþróttinni er best að gera æfingar sem vinna með flesta vöðva líkamans og eru líkar þeim hreyfingum sem notast er við á æfingum og í keppnum. Keppnislíkar æfingar eru mikilvægar til þess að venja líkamann við þeim hreyfingum sem hann gæti átt von á í keppni.
Í rannsókn sem gerð var á áströlskum deildarleik í körfubolta kemur fram að leikmenn taka nálægt 1000 stefnubreytingar í 48 mínútna leik. Þetta jafngildir að breyting verður á tveggja sekúndna fresti og sýnir það hversu breytilegur körfuknattleikurinn er. Eins og sjá má samkvæmt þessu þarf að búa yfir mikilli snerpu og sprengikrafti til þess að geta framkvæmt allar þessar stefnubreytingar á sem mestum hraða. Samkvæmt rannsókninni taka leikmennirnir hliðarskref í 34,6% af öllum hreyfingum í leiknum. Hlaup frá lágri ákefð í háa (frá skokki til spretts) er 31,2% af hreyfingum, hopp er um 4,6% og það að standa og ganga er 29,6% af leiktíma. Hreyfingar á hárri ákefð koma fyrir einu sinni á 21 sekúndna fresti að meðaltali (McInnes o.fl,1995). Rannsakendur komust að því að í 15% tilfella tóku leikmenn hopp og hliðarskref undir hárri ákefð. Í 65% af öllum hreyfingum leiktímans er um að ræða 85% af hámarkshjartslætti (HR/max) að ræða
Þessi færsla er almennt um sprengikraft og með henni ætla ég að sýna fram á hvað sprengikraftur er gífurlega mikilvægur í flestum íþróttagreinum og tók ég körfuna sem dæmi. Fleiri færslur koma bráðlega.
Bestu kveðjur, Villi